Póstlisti




Fréttir

  •  

    Útifundur verður haldinn á Ingólfstorgi í Reykjavík á Baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí. Farið verður í kröfugöngu frá Hlemmi og leggur hún af stað kl. 13:30. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila í göngunni og á Ingólfstorgi.

     

  • Næstu daga munu félagsmenn aðildarfélaga BSRB fá senda til sín kjarakönnun BSRB fyrir árið 2013 á tölvupóstnetföng sín. Það er Capacent sem framkvæmir könnunina fyrir BSRB. Bandalagið hvetur sem flesta til að taka þátt í könnuninni þar sem upplýsingarnar sem hún veitir munu gagnast BSRB til að fá betri yfirsýn yfir kjaramál félagsmanna bandalagsins. Könnunin hefur reynst vera öflugt tæki í réttindabaráttunni og þess vegna er mikilvægt að þátttaka í könnuninni sé með besta móti.
     
  •  Samkomulag var í dag undirritað um 2200 ný störf fyrir langtímaatvinnuleitendur. Markmið verkefnisins er að virkja þá atvinnuleitendur sem hafa fullnýtt rétt sinn innan atvinnuleysistryggingakerfisins til þátttöku að nýju á vinnumarkaði. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, undirritaði samkomulagið fyrir hönd bandalagsins.

    Samstarfsyfirlýsingin er milli velferðarráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, BSRB, BHM, ASÍ, Sambands íslenskra sveitarfélaga og SA, Vinnumálastofnunar og VIRK starfsendurhæfingarsjóðs. Alls eru 3700 manns í hópi þeirra sem fullnýtt hafa rétt sinn til atvinnuleysisbóta. Markmiðið er að þeim verði öllum boðin vinna eða starfsendurhæfing á nýju ári en áætlað er að um 60% taki tilboði um vinnu og því þurfi um 2200 störf að vera í boði. Sveitarfélög muni bjóða upp á að minnsta kosti 660 starfstengd vinnumarkaðsúrræði, ríki og almenni vinnumarkaðurinn um 1500 starfstengd vinnumarkaðsúrræði.

    Samstarfsyfirlýsingin er milli velferðarráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka atvinnulífsins, Vinnumálastofnunar, VIRK starfsendurhæfingar-sjóðs og Starfs vinnumiðlunar og ráðgjafar.

 

  

Aðalfundur
 
Starfsmannfélags Mosfellsbæjar
 
Verður haldin Miðvikudaginn 15.maí . 2013 kl: 18:00
 
Fundurinn verður haldin í sal Lágafellsskóla .
 
 
Dagskrá :
 
1.      Skýrsla stjórnar
 
2.      Lagðir fram endurskoðaðir ársreikningar félagsins.
 
3.              Tillögur til lagabreytinga,
            a. Tillaga um breytingu á Reglugerð fyrir Starfsmenntunarsjóð STAMOS
            1. grein og 5. grein gr,
           
 
3.      Tekin ákvörðun um árgjöld félagsmanna.
 
4.      Kosning stjórnar samkvæmt 6. gr.
 
·         Kosning skoðunarmanna
 
 7. Tillaga að stækkun og / eða endurbætur á sumarhúsi Stamos í Vaðnes frh. frá   aðalfundi 2012
 
8.      Önnur mál sem fram koma á fundinum.
 
 
 
                                                                              Stjórn STAMOS
 

 

 

 

 

_______________________________________________________________________________

Umsóknir sendist í netfangið stamosorlof@gmail.com eða til Helgu Haraldsdóttur í Hulduhlíð 26.
 Sækið umsóknina HÉR
 
 
 Vetrarleiga í Vaðnesi og Akureyri.
Helgarleiga er kr. 7.000 og viðbótarsólarhringur kr. 2.000.
Umsóknir sendist í netfangið stamosorlof@gmail.com
 
 
_____________________________________________________________
 
Félagsmenn Munið Eftir Gjafakortunum í Flug.
 
Orlofsnefndin er með til sölu gjafakort að verðgildi 25.000.  Verð til félagsmanna Stamos er 20.000. kr