Á hádegi í dag, þriðjudaginn 16. maí hófst atkvæðagreiðsla um enn umfangsmeiri verkfallsaðgerðir vegna kjaradeilu STAMOS og 10 annara aðildarfélaga BSRB við Samband íslenskra sveitarfélaga. Atkvæðagreiðslan fer fram rafrænt og mun berast félögum í tölvupósti en einnig er hægt að opna hana hér.
Samband íslenskra sveitarfélaga neitar enn að verða við þeirri sjálfsögðu kröfu að leiðrétta augljósa mismunun á launum starfsfólks sveitarfélaga sem heyrir undir mismunandi kjarasamninga. Á mannamáli þýðir það að félagar STAMOS eiga að fá að meðaltali 25% lægri launahækkun og verða af um 140.000 krónum sem aðrir hafa þegar fengið í launaumslagið. Um er að ræða fólk sem vinnur hlið við hlið, jafnvel í sömu starfsheitum innan sömu stofnana sveitarfélaga; t.d innan leikskóla, grunnskóla, heimila fatlaðs fólks, íþróttamannvirkja og áhaldahúsa.
Greidd verða atkvæði um verkföll á ákveðnum vinnustöðum í Mosfellsbæ sem ætlað er að þrýsta á Samband íslenskra sveitarfélaga að verða við réttlátum kröfum starfsfólks sveitarfélaga um allt land. Vinnustaðirnir sem um ræðir eru Þjónustumiðstöð – Bæjarskrifstofur – leikskólar og Íþróttamiðstöðvar.
Athugið að allt félagsfólk STAMOS hefur atkvæðisrétt hvort sem verkföll eru fyrirhuguð á þeirra vinnustað eða ekki. Við hvetjum því öll til að kjósa til að tryggja starfsfólki félaga BSRB hjá sveitarfélögunum sanngjarnar launahækkanir. Þitt atkvæði skiptir máli.