
1 maí er alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins þar sem launafólk um allt land kemur saman til að minna á mikilvægi réttláts samfélags, góðra kjara og velferðar allra.
Starfsmannafélag Mosfellsbæjar (STAMOS) tekur þátt í deginum ásamt öðrum aðildarfélögum BSRB og hvetur félagsfólk til að taka þátt í hátíðarhöldum dagsins.
Í ár er slagorð dagsins:
„Styrkur okkar er velferð allra.“
Dagskrá 1. maí í Reykjavík
Hátíðarhöldin í Reykjavík fara fram samkvæmt eftirfarandi dagskrá:
Kl. 13:00 – Safnast saman á Skólavörðuholti
Kl. 13:30 – Ganga hefst niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila á Skólavörðuholti og síðan í göngunni niður á Ingólfstorg.
Kl. 14:00 – Útifundur á Ingólfstorgi. Fundarstjóri er er Felix Bergsson, fjölmiðlamaður og leikari. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, ávarpar fundinn og Inspector Spacetime tekur lagið. Í lok fundarins verður samsöngur.
Á útifundinum verða flutt ávörp og tónlistaratriði í anda dagsins.
Dagskráin verður táknmálstúlkuð.
Mikilvægi dagsins
1 maí er ekki aðeins hátíðardagur heldur líka áminning um sameiginlegan styrk launafólks. Með samstöðu og virkri þátttöku getum við haft áhrif á samfélagið og unnið að bættum lífskjörum fyrir alla.
STAMOS hvetur félagsfólk sitt til að mæta, taka þátt og sýna samstöðu með öðrum launþegum.
Deila frétt