Fara beint í efni
Þjónusta

Styrkir

Starfsmannafélag Mosfellsbæjar býður félagsfólki upp á fjölbreytta styrki, niðurgreiðslu námskeiða og stuðning við tómstundir. Úrræðin eru ætluð til að styðja við bæði faglega og persónulega þróun, efla vellíðan og skapa tækifæri til símenntunar, starfsþróunar og heilsueflingar.

Styrkir í boði

Hér má sjá alla styrki sem Stamos býður félagsmönnum sínum. Smelltu á styrk til að sjá nánari upplýsingar og sækja um.

Orlofsstyrkur

Fyllið út eyðublaðið hér fyrir neðan, vandið frágang og gögnin sem fylgja umsókninni. Farið er yfir umsóknir á afgreiðslufundi einu sinni í mánuði, í framhaldinu eru styrkir greiddir.

Hámarksupphæð

70.000 kr.

Stamos styrkir
Starfsmenntasjóður — einstaklingar

Einstaklingar: Félagsmenn sækja um styrk með því að senda inn umsókn rafrænt. Vinsamlegast kynnið ykkur úthlutunarreglur áður en sótt er um styrk.Hópumsókn: Umsjónarmaður umsóknar sækir um styrkinn fyrir hópinn og heldur utan um gögn. Eingöngu umsjónarmanni umsóknar er svarað um stöðu umsóknar eða annarra fyrirspurna er varða umsóknina.  Vanda skal frágang umsóknar og öll fylgiskjöl þurfa að berst með umsókninni.

Hámarksupphæð

130.000 kr

Stamos styrkir
Útfararstyrkur

Greiddur er 225.000 kr styrkur vegna útfarar, enda hafi hinn látni verið félagi í STAMOS a.m.k. 1. ár fyrir andlát.Greiddur er styrkur vegna útfarar fyrrverandi sjóðfélaga sem látið hafa af störfum og farið á ellilífeyri/örorkulífeyri og voru sjóðfélagar síðustu 3. ár samfellt fyrir starfslok.Greiddur er styrkur til félaga vegna útfarar barna þeirra 18 ára og yngri.

Hámarksupphæð

225.000 kr

Stamos styrkir
Starfsmenntasjóður — hópar

Hópumsókn: Umsjónarmaður umsóknar sækir um styrkinn fyrir hópinn og heldur utan um gögn. Eingöngu umsjónarmanni umsóknar er svarað um stöðu umsóknar eða annarra fyrirspurna er varða umsóknina.  Vanda skal frágang umsóknar og öll fylgiskjöl þurfa að berst með umsókninni.

Hámarksupphæð

130.000 kr

Stamos styrkir
Katla félagsmannasjóður

Kötlu félagsmannasjóð eiga starfsmenn sveitarfélaga sem eru félagsmenn aðildarfélaga BSRB.

Kötlusjóður
Hekla mannauðssjóður

Í gegnum Mannauðssjóðinn Heklu geta sveitarfélög, vinnustaðir og stofnanir sótt um styrki fyrir námskeiðum og starfsþróun þeirra starfsmanna sem eru sjóðsfélagar í Heklu.

Hámarksupphæð

170000

Ferða- og fræðslustyrkur
Fæðingarstyrkur

Sjóðfélagi sem hefur verið starfandi síðustu 6 mánuði fyrir fæðingu barns og hefur gildan ráðningarsamning við upphaf fæðingarorlofs á rétt á styrk. Við útreikning upphæðar er miðað við greidd iðgjöld í sjóðinn síðustu 12 mánuði, ef iðgjaldaupphæð nær 45.000 kr. er styrkurinn 240.000 kr. Nái iðgjaldaupphæðin ekki þessu marki lækkar styrkurinn hlutfallslega miðað við inngreidd iðgjöld.ATH að til að fá fæðingarstyrk þá þarf að skila inn fæðingarvottorði barns frá Þjóðskrá Íslands.  

Hámarksupphæð

240000

Klettur Styrktarsjóður
Krabbameinsleit

Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 6 mánuði af síðustu 12 fær styrk til krabbameinsleitar tvisvar sinnum á almanaksári, allt að 20.000 kr.

Klettur Styrktarsjóður
Líkamsræktarstyrkur

Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 mánuðum, fær styrk að hámarki 35.000 kr. á 12 mánaða fresti samkvæmt reikningi frá eftirtöldum aðilum: Líkamsræktarstöðvum, sundstöðum, skíðastöðum eða íþróttafélagi Einnig heilsurækt sem telst sambærileg að dómi sjóðstjórnar. Sjóðurinn veitir ekki styrki vegna kaupa á gatakortum. Reikningar mega ekki vera eldri en árs gamlir þegar sótt er um styrkinn.

Klettur Styrktarsjóður
Sjúkraþjálfun

Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum, fær styrk vegna sjúkraþjálfunar, iðjuþjálfunar, nálastungumeðferðar eða hnykklækninga (kiropraktor), 40% af reikningi, hámarksstyrkur 42.000 kr. á ári. Reikningar mega ekki vera eldri en árs gamlir þegar sótt er um styrkinn. 

Klettur Styrktarsjóður
Veikindi sjóðsfélaga

Sjúkradagpeningar í langtímaveikindum.

Klettur Styrktarsjóður

Hvernig sæki ég um styrk ?

Það er einfalt að sækja um styrki hjá Stamos. Fylgdu þessum skrefum.

1

Allir styrkir

Inn á heimsíðu Stamos, finnur þú ýmsa styrki.

2

Veldu styrk

Veldu þann styrk sem þú vilt sækja um og fylltu út umsókn.

3

Sendu gögn

Sendu inn nauðsynleg gögn, með nafni og kenntitölu og bíddu eftir afgreiðslu.