Um okkur
LÖG STARFSMANNAFÉLAGS MOSFELLSBÆJAR
Hér eru lög Stamos
1. grein
Félagið heitir Starfsmannafélag Mosfellsbæjar, STAMOS
2. grein
Félagið er stéttarfélag og tilgangur þess er:
- að fara með fyrirsvar um kjarasamninga og aðrar ákaðranir fyrir hönd félagsmanna samkvæmt lögum og reglugerð um kjarasamninga sveitarfélaga
- að gæta hagsmuna félagsmanna í öllu því sem varðar laun, önnur kjör og starfsréttindi hvers konar.
- að vinna að samstöðu félagsmanna
- að stuðla að auknu samstarfi opinberra starfsmanna og samvinnu samtaka launafólks.
Samþykkt á aðalfundi STAMOS 3.desember 2019