
Ágætu félagsmenn
Opnað verður fyrir umsóknir um orlofshúsin okkar þriðjudaginn 24. febrúar.
Umsóknarfrestur er til og með 9. mars (lokadagur).
Um vikudvöl er að ræða og tvö orlofshús eru í boði í ár.
Úthlutað verður alls 10 vikum, fyrir hvert hús og er úthlutunin slembi-úthlutun.
Verðið fyrir vikuna er kr. 28.000.
Að úthlutun lokinni fær félagsfólk niðurstöður sendar í tölvupósti á skráð netfang á orlofsvef.
Þeir sem fá úthlutað hafa greiðslufrest til 17. mars.
Þegar greiðslufrestur er liðinn eru ógreiddar úthlutanir settar á vefinn og þá gildir reglan “fyrstur kemur, fyrstur fær”
Sumarorlofstímabilið er frá 5. júní – 14. ágúst, vikuleiga
Opnun umsókna hefst: 24. febrúar
Umsóknarfresti lýkur: 9. mars
Úthlutun: 10. mars
Greiðslufrestur til og með: 17. mars
Til að komast inn á orlofsvefinn er notuð rafræn skilríki.
Deila frétt