Kjarasamningur Samband íslenskra sveitarfélaga
Efnisyfirlit samnings
Um samninginn
Stutt samantekt Á þessari síðu eru settar saman helstu upplýsingar og viðaukar sem fylgja kjarasamningi starfsmanna sveitarfélaga 2024–2028. Hér má finna leiðbeiningar, bókanir og útskýringar á þeim breytingum sem snerta daglegt starf — til dæmis um vinnutíma, vaktir, launatöflur, bakvaktir, persónuuppbætur og ráðningar í tímavinnu. Markmiðið er að gera efnið aðgengilegt, skýrt og auðvelt að lesa fyrir alla sem þurfa að vinna eftir samningnum. Með fyrirvara um innsláttarvillur
Inngangur
Kjarasamningar aðila framlengjast frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028 með þeim breytingum sem í samkomulagi þessu felast og fellur þá úr gildi án frekari fyrirvara.
Kjarasamningur þessi byggir á heildarkjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga, f.h. þeirra sveitarfélaga og annarra aðila sem það hefur samningsumboð fyrir, og bæjarstarfsmannafélaga innan BSRB sem unnin var sameiginlega af aðilum og hefur gildistíma frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028.
Bæjarstarfsmannafélögin eru:
Kjölur, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu
Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi
FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu
Sameyki, stéttarfélag í almannaþjónustu
Starfsmannafélag Garðabæjar
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Starfsmannafélag Húsavíkur
Starfsmannafélag Kópavogs
Starfsmannafélag Mosfellsbæjar
Starfsmannafélag Suðurnesja
Starfsmannafélag Vestmannaeyja
Þeir starfsmenn sem heyra undir kjarasamning þennan hafa réttindi og skyldur samkvæmt lögum nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Þar er m.a. fjallað um sérstöðu opinberra starfsmanna, samningsrétt stéttarfélagsins og verkfallsrétt.
Með þessum kjarasamningi eru ákvæði um betri vinnutíma færð inn í kjarasamninginn samkvæmt fylgiskjölum 2 og 3 með áorðnum breytingum og falla þar með bæði fylgiskjölin úr gildi.
1 Laun
1.1 Föst mánaðarlaun
Grein 1.1.1 breytist og hljóði svo
1.1.1
Mánaðarlaun þeirra sem gegna fullu starfi, skulu greidd samkvæmt eftirfarandi launatöflu, sjá nánar í fylgiskjali 1:
Launatafla 1: Gildir frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2025
Launatafla 2: Gildir frá 1. apríl 2025 til 31. mars 2026.
Launatafla 3: Gildir frá 1. apríl 2026 til 31. mars 2027.
Launatafla 4: Gildir frá 1. apríl 2027 til 31. mars 2028.
Mánaðarlaun hækka sem hér segir á samningstímanum:
1. apríl 2024: 23.750 kr. eða að lágmarki um 3,25% sbr. launatöflu 1.
1. apríl 2025: 23.750 kr. eða að lágmarki um 3,50% sbr. launatöflu 2.
1. apríl 2026: 23.750 kr. eða að lágmarki um 3,50% sbr. launatöflu 3.
1. apríl 2027: 23.750 kr. eða að lágmarki um 3,50% sbr. launatöflu 4.
Útgefin launatafla hverju sinni nær yfir alla launaflokka sem miðað er við í kjarasamningi þessum. Við launaflokk leggst einstaklingsbundið persónuálag í samræmi við viðeigandi ákvæði í 10. kafla samnings þessa og myndar þannig dagvinnulaun viðkomandi starfsmanns. Laun þessi eru viðmiðun vegna afleiddra launategunda, s.s. tímakaups í yfir- og dagvinnu og lífeyrisgreiðslna B-deilda opinberra lífeyrissjóða eða sambærilegra deilda slíkra sjóða.
Undir almenn ákvæði þessa kjarasamnings heyra allir þeir starfsmenn sem verða 16 ára á almanaksárinu og eldri, sem sinna skilgreindum störfum skv. starfsmati sveitarfélaga og fá laun sem starfinu fylgja.
1.4 Tímavinnukaup
Grein 1.4.1 um tímavinnukaup breytist á samningstíma. Eftirfarandi gildir um dagvinnufólk til 31. október 2024.
1.4.1
Tímavinnukaup í dagvinnu í hverjum launaflokki er 0,615% af mánaðarkaupi. Við útreikning tímakaups skal jafnframt taka mið af persónuálagi viðkomandi starfsmanns, sbr. gr. 1.1.1 og 10. kafla eftir því sem við á.
Þegar unnið er í tímavinnu skal ekki greitt vaktaálag á þær stundir sem eru utan hefðbundins dagvinnutíma heldur greidd yfirvinna.
Grein 1.4.1 breytist á samningstíma. Ofangreint gildir fyrir dagvinnufólk til 31. október 2024.
Grein 1.4.1 um tímavinnukaup breytist á samningstíma. Eftirfarandi gildir um dagvinnufólk frá og með 1. nóvember 2024.
1.4.1
Tímavinnukaup í dagvinnu er 0,632% af mánaðarlaunum í hverjum launaflokki og þrepi. Við útreikning tímakaups skal jafnframt taka mið af persónuálagi viðkomandi starfsmanns, sbr. gr. 1.1.1 og 10. kafla eftir því sem við á.
Þegar unnið er í tímavinnu skal ekki greitt vaktaálag á þær stundir sem eru utan hefðbundins dagvinnutíma heldur greidd yfirvinna. Sjá nánar leiðbeiningar vegna ráðningarfyrirkomulagsins tímavinnu í fylgiskjal 3.
Grein 1.4.1 breytist á samningstíma fyrir dagvinnufólk. Ofangreint gildir frá 1. nóvember 2024.
Tímavinnukaup í vaktavinnu er 0,632% og tók gildi 1. maí 2021.
Grein 1.4.3 um vinnuskóla fellur niður en ákvæði um vinnuskóla eru í viðauka 5
1.5 Yfirvinnukaup
Grein 1.5.1 um yfirvinnu breytist á samningstíma. Eftirfarandi gildir um dagvinnufólk til 31. október 2024.
1.5.1
Yfirvinna er greidd með tímakaupi, sem skiptist í yfirvinnu 1 og yfirvinnu 2.
Tímakaup yfirvinnu 1 er 0,9385% af mánaðarlaunum.
Tímakaup yfirvinnu 2 er 1,0385% af mánaðarlaunum.
Greiðsla fyrir yfirvinnu skal vera með eftirtöldum hætti:
Yfirvinna 1: kl. 08.00–17.00 mánudaga–föstudaga.
Yfirvinna 2: kl. 17.00–08.00 mánudaga–föstudaga.
Yfirvinna 2: kl. 00.00–24.00 laugardaga, sunnudaga og sérstaka frídaga.
Tímakaup yfirvinnu 2 greiðist jafnframt fyrir vinnu umfram fullt starf skv. gr. 2.1.1.
Standist umsamin tímasetning á framkvæmd styttingar vinnutíma ekki hjá sveitarfélagi/stofnun, fylgir breyting á gr. 1.5.1 breyttri dagsetningu.
Starfi félagsmaður hjá sama sveitarfélagi á fleiri en einni starfseiningu eða stofnun skal við útreikning á yfirvinnu 1 og 2 miða við heildarstarfshlutfall hjá viðkomandi sveitarfélagi eins og um eitt starf væri að ræða.
Grein 1.5.1 breytist á samningstíma. Ofangreint gildir fyrir dagvinnufólk til 31. október 2024.
Grein 1.5.1 um yfirvinnu breytist og hljóði svo frá 1. nóvember 2024. Eftirfarandi gildir frá og með 1. nóvember 2024.
1.5.1
Yfirvinna er greidd með tímakaupi, sem skiptist í yfirvinnu 1 og yfirvinnu 2.
Tímakaup yfirvinnu 1 er 0,9385% af mánaðarlaunum í hverjum launaflokki og þrepi.
Tímakaup yfirvinnu 2 er 1,0385% af mánaðarlaunum í hverjum launaflokki og þrepi.
Greiðsla fyrir yfirvinnu skal vera með eftirtöldum hætti:
Yfirvinna 1: kl. 08.00–17.00 mánudaga–föstudaga.
Yfirvinna 2: kl. 17.00–08.00 mánudaga–föstudaga.
Yfirvinna 2: kl. 00.00–24.00 laugardaga, sunnudaga og sérstaka frídaga.
Tímakaup yfirvinnu 2 greiðist jafnframt fyrir vinnu umfram 38,92 stundir á viku (168,63 stundir miðað við meðalmánuð).
Grein 1.5.1 breytist á samningstíma. Ofangreint gildir frá 1. nóvember 2024.
Sé um fasta yfirvinnu að ræða, greiðist hún samkvæmt yfirvinnu 2 (1,0385%).
Grein 1.5.6 um ónæði utan vinnutíma er ný grein hljóði svo:
1.5.6
Ónæði utan vinnutíma Starfsmanni ber ekki að svara erindum tengdu starfi hans utan vinnutíma nema í neyðartilvikum.
Gefi vinnuveitandi upp símanúmer eða netfang starfsmanns og feli honum að svara erindum fyrir hönd vinnuveitanda utan vinnutíma, skal það tilgreint í starfslýsingu og fyrirfram samið um greiðslu fyrir slík verkefni.
Greinin á ekki við um stjórnendur eða starfsmenn sem hafa starfsskyldur af þessu tagi í starfslýsingu sinni og tillit hefur verið tekið til við launasetningu starfa þeirra.
Um er að ræða verkefni sem ekki krefjast þess að starfsmaður sé á skipulagðri bakvakt.
1.6 Álagsgreiðslur
Vaktaálag er greitt til þeirra starfsmanna sem vinna vaktavinnu, bakvaktir og aðra vinnu sem fellur utan dagvinnutímabils en er hluti vikulegrar vinnuskyldu (sbr. gr. 2.2.3.). Vaktaálag er greitt vegna afbrigðilegs og óþægilegs vinnutíma.
Grein 1.6.1 um vaktaálag breytist á samningstíma. Eftirfarandi gildir um dagvinnufólk til 31. október 2024.
1.6 Álagsgreiðslur – vaktaálag
1.6.1
Vaktaálag reiknast af dagvinnukaupi, sbr. gr. 1.4.1. Vaktaálag skal vera:
33,33% kl. 17:00 – 24:00 mánudaga til fimmtudaga
55,00% kl. 17:00 – 24:00 föstudaga
55,00% kl. 00:00 – 08:00 mánudaga til föstudaga
55,00% kl. 00:00 – 24:00 laugard., sunnud. og sérstaka frídaga
90,00% kl. 00:00 – 24:00 stórhátíðardaga, sbr. 2.1.4.3.
Brot úr klst. greiðist hlutfallslega.
Grein 1.6.1 breytist á samningstíma. Ofangreint gildir fyrir dagvinnufólk til 31. október 2024.
Grein 1.6.1 um vaktaálag breytist á samningstíma. Eftirfarandi gildir frá 1. nóvember 2024:
1.6.1
Vaktaálag reiknast af dagvinnukaupi sbr. gr. 1.4.1. Vaktaálag skal vera:
33,33% kl. 17:00 – 24:00 mánudaga – fimmtudaga
55,00% kl. 17:00 – 24:00 föstudaga
65,00% kl. 00:00 – 08:00 þriðjudaga – föstudaga
55,00% kl. 08:00 – 24:00 laugardaga, sunnudaga og sérstaka frídaga
75,00% kl. 00:00 – 08:00 laugardaga, sunnudaga, mánudaga og sérstaka frídaga
120,00% kl. 00:00 – 24:00 stórhátíðardaga sbr. gr. 2.1.4.3.
165,00% kl. 16:00 – 24:00 á aðfangadag og gamlársdag sbr. gr. 2.1.4.3.
165,00% kl. 00:00 – 08:00 á jóladag og nýársdag sbr. gr. 2.1.4.3.
Brot úr klst. greiðist hlutfallslega.
Grein 1.6.1 breytist á samningstíma. Ofangreint gildir frá 1. nóvember 2024.
Grein 1.6.1 fyrir vaktavinnufólk gildir frá 1. apríl 2023.
Grein 1.6.2 um bakvaktaálag breytist á samningstíma. Eftirfarandi gildir um dagvinnufólk til 31. október 2024.
1.6.2
Greiðsla fyrir bakvaktir skal reiknast af dagvinnukaupi, sbr. gr. 1.4.1 með eftirtöldum hætti:
45,00% kl. 00:00 – 08:00 mánudaga
33,33% kl. 00:00 – 08:00 þriðjudaga til föstudaga
33,33% kl. 17:00 – 24:00 mánudaga til fimmtudaga
45,00% kl. 17:00 – 24:00 föstudaga
45,00% kl. 00:00 – 24:00 laugard., sunnud. og sérstaka frídaga
90,00% kl. 00:00 – 24:00 stórhátíðardaga, sbr. 2.1.4.3.
Brot úr klst. greiðist hlutfallslega. Um greiðslur fyrir útköll á bakvakt gildir gr. 2.3.3.
Grein 1.6.2 breytist á samningstíma. Ofangreint gildir fyrir dagvinnufólk til 31. október 2024.
Grein 1.6.2 um bakvaktaálag breytist á samningstíma og hljóði svo frá 1. nóvember 2024.
1.6.2
Greiðsla fyrir bakvaktir skal reiknast af dagvinnukaupi sbr. gr. 1.4.1 með eftirtöldum hætti:
33,33% kl. 17:00 – 24:00 mánudaga – fimmtudaga
45,00% kl. 17:00 – 24:00 föstudaga
45,00% kl. 00:00 – 08:00 mánudaga
33,33% kl. 00:00 – 08:00 þriðjudaga – föstudaga
45,00% kl. 00:00 – 24:00 laugard., sunnud. og sérstaka frídaga
120,00% kl. 00:00 – 24:00 stórhátíðardaga sbr. gr. 2.1.4.3.
165,00% kl. 16:00 – 24:00 á aðfangadag og gamlársdag sbr. gr. 2.1.4.3.
165,00% kl. 00:00 – 08:00 á jóladag og nýársdag sbr. gr. 2.1.4.3.
Brot úr klst. greiðist hlutfallslega. Um greiðslur fyrir útköll á bakvakt gildir gr. 2.3.3.
Grein 1.6.2 breytist á samningstíma. Ofangreint gildir frá 1. nóvember 2024.
1.7 Persónuuppbót
Upphæðir í grein 1.7.1 um persónuuppbætur breytast:
1.7.1
Starfsmaður í 100% starfshlutfalli fær greidda persónuuppbót 1. maí og 1. desember ár hvert. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag. Hafi starfsmaður gengt hlutastarfi eða starfað hluta úr ári, skal hann fá greitt hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Tímavinnumaður fær fulla persónuuppbót ef hann vinnur 1504 virkar vinnustundir. Greitt skal hlutfallslega miðað við unna tíma og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag.
Hafi starfsmaður látið af störfum á árinu vegna aldurs skal hann fá greidda persónuuppbót hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Sama hlutfallsregla gildir ef starfsmaður var frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu vinnuveitanda lýkur eða vegna fæðingarorlofs sbr. 8. gr. laga nr. 144/2020. Sjá einnig gr. 11.1.8.
Persónuuppbót er föst fjárhæð og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum samningsins. Á persónuuppbót reiknast ekki orlofslaun.
Áunnin persónuuppbót skal gerð upp við starfslok starfsmanns.
Persónuuppbót miðað við 100% starfshlutfall á samningstímanum verður sem hér segir:
1. maí 2024: kr. 57.500
1. desember 2024: kr. 135.500
1. maí 2025: kr. 59.500
1. desember 2025: kr. 140.000
1. maí 2026: kr. 62.000
1. desember 2026: kr. 145.000
1. maí 2027: kr. 64.000
1. desember 2027: kr. 150.000