4-5
Gestir
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
90 fm
Stærð
Lyklar eru í lyklaboxi við útidyrnar á Hafnarstræti 86a. Númerið á boxinu er 2804. Lykli er skilað í lyklabox að dvöl lokinni.
Leigutími:
Helgarleiga: frá föstudegi kl.16:00 til sunnudags kl. 14:00
Vikuleiga: frá föstudegi kl. 16:00 til föstudags kl. 12:00
Íbúðin samanstendur af 2 svefnherbergjum, stofu, eldhúsi, baðherbergi og litlum svölum. Í hjónaherbergi er hjónarúm (180 cm), fataskápur og sjónvarp. Í herbergi er rúm (140 cm) og fataskápur. Í stofu er rúmgóður sófi, smart sjónvarp (nýtt okt 2023) auk annars búnaðar. Í eldhúsi er venjuleg kaffivél og Nespresso vél, uppþvottavél, bakarofn, örbylgjuofn og fleiri smærri tæki. Á baði er sturta, hárþurrka, þvottavél og þurrkari. Á svölum er Weber gasgrill.
Í húsinu er einnig barnarúm, barnastóll og tvær lausar dýnur.
Innritun
16:00
Útritun
12:00
Rúmföt, handklæði, diskaþurrkur, tuskur og salernispappír, kaffipoka nr.4.
Securitas sér eingöngu um þvott á moppum.
Leigjandi skal ganga vel um hús og umhverfi. Hver hlutur á að vera á sínum stað. Leigjandi ber ábyrgð á öllum búnaði hússins meðan á leigutíma stendur og skuldbindur sig til þess að bæta tjón sem verða kann af hans völdum eða þeirra sem dveljast á hans vegum í húsinu á leigutímanum.
Securitas á Akureyri hefur eftirlit með íbúðinni og hafa starfsmenn heimild til að vísa gestum úr íbúðinni sem fara ekki eftir settum reglum.
Reykingar eru stranglega bannaðar inni í íbúðinni
ALLT DÝRAHALD ER STRANGLEGA BANNAÐ Í ÍBÚÐINNI
Mikilvægt
Við komu og brottför:
Við komu skal kynna sér brunavarnir og neyðarútgang.
Við brottför skal ræsta íbúðina vel, skilja við hana eins og við óskum að koma að henni sjálf.
Losa vatn úr Nespresso könnu, skilja þvottavél eftir opna, losa vatn úr þurrkaraboxi ef við á.
Vinsamlegast skiljið ekki eftir þurrmat eða frystivöru í íbúðinni, við brottför.
Félagið áskilur sér rétt til að láta ræsta húsið á kostnað leigjenda ef viðskilnaður er ekki viðunandi. Verð fyrir þrif er kr. 25.000,-
Stranglega er bannað að framleigja íbúðina eða afhenda hana öðrum til dvalar en þeim sem hún er leigð til af félaginu.
Sorphirða:
Akureyrarbær tók upp kerfi árið 2023 varðandi flokkun sorps.Það eru flokkað í fjórum flokkum úrgangs við hvert heimili.
Flokkarnir eru matarleifar, blandaður úrgangur, pappi og plast.
Mikilvægt er að:
Flokka matarleifar, pappír og plast í réttar tunnur.
Skila umframúrgangi í grenndargáma eða á gámasvæði
Hvernig á að sækja um orlofshús?
Smellt er á hnapp hér fyrir neðan "Bóka á orlofsvef", til að fara inn á orlofsvefinn.
Allar bókanir á orlofshúsum, sem og kaup á gjafabréfum og kortum, fara fram á orlofsvefnum með innskráningu með rafrænum skilríkjum.
Athugið að bókun telst ekki staðfest fyrr en greiðsla hefur verið innt af hendi.
Afbókanir og breytingar á bókunum, svo sem að bæta við aukadögum, fara einnig fram á orlofsvefnum.