Fara beint í efni

Kerhraun 31

Grímsnes

12

Gestir

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

95

Stærð

Upplýsingar

Velkomin í sumarbústaðinn í Kerhrauni 🌿

Sumarbústaðurinn er staðsettur í fallegu og friðsælu umhverfi í Grímsnesinu. Þegar ekið er fram hjá Kerinu tekurðu annan afleggjara til vinstri og fylgir honum alla leið að rafmagnshliði sem opnast með fjarstýringu. Þar tekur við notaleg dvöl með góðri aðstöðu fyrir fjölskyldur og hópa.

Afhending lykla

Lyklar eru afhentir á skrifstofu Stamos á opnunartíma.

Við brottför skal skila lyklum á skrifstofu Stamos fyrsta mánudag eða þriðjudag eftir dvöl, milli kl. 12:00–14:00.
Einnig er hægt að skila lyklunum í póstkassa merktum Stamos fyrir framan skrifstofuna.

Um húsið

Um bústaðinn

Í húsinu eru svefnpláss fyrir allt að 12 manns og samtals 13 rúm.

Svefnaðstaða

2 svefnherbergi
Svefnloft með 7 svefnplássum

Aðstaða í húsinu

Venjuleg kaffivél
Nespresso kaffivél
Senseo kaffivél
2 sjónvörp
Internet/WiFi
Þvottavél og þurrkari

Gott getur verið að taka með sér leikjatölvu fyrir þá sem vilja njóta þess.

Utandyra

Stór pallur með garðhúsgögnum
Gasgrill
2 gaskútar
Heitur pottur

Ef gas klárast þarf að fylla á gaskút á Selfossi. Takið kvittun og Stamos endurgreiðir kostnaðinn.

Þægindi
Wi-Fi
Eldavél
Uppþvottavél
Kaffivél
Þvottavél
Senseo
Nespresso
Örbylgjuofn
Hægindastólar
Sjónvarp
Gasgrill
Heitur pottur
Eldhús
Bakarofn
Þurrkari
Innritun og útritun

Innritun

15:00

Útritun

12:00

Þetta þarf að taka með

Það sem þarf að taka með sér

Gestir þurfa sjálfir að koma með:

Rúmföt
Handklæði
Viskastykki
Borðtuskur
Umhverfisvænan salernispappír

Óhreinar moppur skulu hengdar á snaga í geymslunni undir stiganum.

Húsreglur

Við komu

Við komu er mikilvægt að:

  • Kynna sér brunavarnir og neyðarútganga

  • Lesa leiðbeiningar um heita vatnið

  • Fara yfir notkun á heita pottinum

Heiti potturinn
Kveikt er á pottinum inni í geymslu í bústaðnum með einföldum on/off rofa.

  • Pottinn má tæma og fylla eftir þörfum

  • Ef kæla þarf pottinn er köld vatnsslanga fyrir utan húsið

Internet

Internet er í húsinu.
Lykilorð má finna aftan á netbeini (router).

Við brottför

Við biðjum gesti um að ganga vel frá húsinu og skilja við það eins og þeir vilja sjálfir koma að því.

Mikilvægt við brottför:

  • Þrífa húsið vel

  • Þrífa grillgrind og bakka vel eftir notkun

  • Taka allt sorp með sér

  • Taka allar flöskur og dósir með sér

ATHUGIÐ:

  • Enginn sorpgámur er í Kerhrauni

  • Grenndarstöðvar/sorpgámar eru í:

    • Vaðnesi

    • Seyðishólum

Á svæðinu er sérstakur dósagámur og rennur allur ágóði hans til trjáræktar í Kerhrauni 🌲

Félagið áskilur sér rétt til að láta ræsta húsið á kostnað leigjenda ef umgengni er ekki viðunandi.

Þrifagjald er kr. 25.000.

 

Mikilvægt

  • Reykingar eru stranglega bannaðar inni í húsinu

  • Framleiga eða afhending hússins til annarra en skráðra leigjenda er óheimil

  • Leigjandi ber ábyrgð á öllum búnaði hússins á leigutíma

Dýrahald:

ALLT DÝRAHALD ER STRANGLEGA BANNAÐ Í HÚSINU

Í neyðartilfellum má hafa samband við Eddu Davíðsdóttir s: 615-1532 eða Jenný s: 697-5914

Nálægt
Kerið5-10 mín akstur
Selfoss20-25 mín akstur
Gullni hringurinnNálægt helstu perlum hringsins
Þingvellir þjóðgarður35-40 mín akstur
Gullfoss50-60 mín akstur
Geysir / Strokkur45-50 mín akstur
Laugavatn Fontana30 mín akstur
Hestaleigur og útivist10-30 mín fjarlægt
Algengar spurningar

Aðstoð við bókun

Skrifstofa Stamos

stamos@stamos.is566-6685
Bókun og aðstoð

Hvernig á að sækja um orlofshús?

Smellt er á hnapp hér fyrir neðan "Bóka á orlofsvef", til að fara inn á orlofsvefinn.

Allar bókanir á orlofshúsum, sem og kaup á gjafabréfum og kortum, fara fram á orlofsvefnum með innskráningu með rafrænum skilríkjum.

Athugið að bókun telst ekki staðfest fyrr en greiðsla hefur verið innt af hendi.

Afbókanir og breytingar á bókunum, svo sem að bæta við aukadögum, fara einnig fram á orlofsvefnum.

Þarftu aðstoð?