Fara beint í efni
Ferða- og fræðslustyrkur

Hekla mannauðssjóður

Í gegnum Mannauðssjóðinn Heklu geta sveitarfélög, vinnustaðir og stofnanir sótt um styrki fyrir námskeiðum og starfsþróun þeirra starfsmanna sem eru sjóðsfélagar í Heklu.

Hámarksupphæð

170000

Afgreiðslutími

6-8 vikur

Flokkur

Ferða- og fræðslustyrkur

Um styrkinn

Í gegnum Mannauðssjóðinn Heklu geta sveitarfélög, vinnustaðir og stofnanir sótt um styrki fyrir námskeiðum og starfsþróun þeirra starfsmanna sem eru sjóðsfélagar í Heklu.

Hvernig sæki ég um?
1

Sótt er um á heimasíðu sjóðsins.

2

https://www.mannaudssjodur.is/

Mikilvægt að vita

Mannauðssjóðurinn Hekla er starfsþróunarsjóður og hefur það hlutverk að veita styrki til fræðsluverkefna á vegum sveitarfélaga og stofnana þeirra sem tengjast markvissri starfsþróun. Veittir eru styrkir til:

· Sveitarfélaga, stofnana og vinnuveitenda sem greiða í sjóðinn.

· Stéttarfélaga sem aðild eiga að sjóðnum.

· Verkefna sem sjóðsstjórn skipuleggur eða á aðkomu að.

Umsóknir skulu sendar í gegnum umsóknargátt á heimasíðu sjóðsins þar sem fram kemur lýsing á því verkefni sem sótt er um styrk til, skipulagi þess, efnisinntaki, áætlaðri framkvæmd, kostnaði, öðrum styrkjum og framlagi umsækjanda.

Greiðslur úr sjóðnum fara fram gegn framvísun á útlögðum kostnaði umsækjenda, stofnunar eða sveitarfélags, sjá úthlutunarreglur. https://www.mannaudssjodur.is/uthlutunarreglur

Sjóðurinn heitir Mannauðssjóðurinn Hekla. Sjóðurinn starfar á grundvelli kjarasamnings Sambands íslenska sveitarfélaga.

Sækja um hekla mannauðssjóður

170000

Sækja um núna

Afgreiðslutími: 6-8 vikur

Úthlutunarreglur
Þarftu aðstoð?

Ef þú hefur spurningar um þennan styrk eða þarft aðstoð við umsókn, ekki hika við að hafa samband.

Til baka í styrkjalista