Fara beint í efni
STAMOS Styrkir

Starfsmenntunarsjóður — einstaklingar

Félagsmenn sækja um styrk með því að senda inn umsókn rafrænt. Vinsamlegast kynnið ykkur úthlutunarreglur áður en sótt er um styrk.

Hámarksupphæð

130.000 kr

Tímabil

130.000 kr á tveggja ára tímabili

Afgreiðslutími

4-6 vikur

Flokkur

STAMOS Styrkir

Um styrkinn

Félagsmenn sækja um styrk með því að senda inn umsókn rafrænt. Vinsamlegast kynnið ykkur úthlutunarreglur áður en sótt er um styrk.

Skilyrði fyrir styrk
  • Þegar félagsmaður hefur greitt iðgjöld í sjóðinn í 6. mánuði
Nauðsynleg gögn
  • 1
    Reikningur fyrir námi eða námskeiði með nafni og kennitölu umsækjanda.
  • 2
    Staðfesting á greiðslu námsins með nafni og kennitölu.
Hvernig sæki ég um?
1

Sótt er um rafrænt á heimasíðu Stamos.

Mikilvægt að vita

Reglugerð fyrir Starfsmenntunarsjóð

  1. Sjóðurinn heitir Starfsmenntunarsjóður STAMOS og starfar hann með því skipulagi og markmiði sem segir í þessari greinagerð.

  2. Tekjur sjóðsins eru :
    a) Framlag bæjarsjóðs samkvæmt gildandi kjarasamningi milli Starfsmannafélags
    Mosfellsbæjar og Bæjarsjóðs Mosfellsbæjar.
    b) Vaxtatekjur.

  3. Markmið sjóðsins eru:
    Að styrkja félaga í STAMOS til náms er nýtist viðkomandi í starfi. Að starfsmenn eigi án verulegs kostnaðar kost á námskeiðum sem gerir þeim mögulegt að taka að sér vandasamari störf og gerir þá hæfari einstaklinga.

  4. Heimilt er að sjóðurinn taki þátt í kostnaði af námskeiðum eða einstökum fyrirlestrum fyrir starfshópa eða félagsmenn STAMOS almennt, sem efnt kynni að vera til fyrir forgöngu STAMOS eða Mosfellsbæjar eða þessara aðila sameiginlega. Sjóðnum er einnig heimilt að styrkja fræðslu- og menningarferðir einstakra starfshópa.

  5. Stjórnin skal halda gerðabók og rita í hana samþykktir sínar.

  6. Reglur þessar skulu endurskoðaðar í febrúar ár hvert.

  7. Reglugerð þessi öðlast gildi við samþykkt aðalfundar.

Tók gildi 22. maí 2008

Reglur í pdf

Úthlutunarreglur

Sækja um starfsmenntunarsjóður — einstaklingar

130.000 kr

Sækja um núna

Afgreiðslutími: 4-6 vikur

Úthlutunarreglur
Þarftu aðstoð?

Ef þú hefur spurningar um þennan styrk eða þarft aðstoð við umsókn, ekki hika við að hafa samband.

Til baka í styrkjalista